Lífið

Ungar Hollywood-leikkonur óðar í Lisbeth Salander

Natalie Portman vill aftur raka af sér hárið eins og hún gerði fyrir myndina V for Vendetta.
Natalie Portman vill aftur raka af sér hárið eins og hún gerði fyrir myndina V for Vendetta.
Leikstjórinn David Fincher er á fullu þessa dagana að undirbúa tökur á aðlögun sinni að metsölubókum Stieg Larsson og er Karlar sem hata konur fyrst á dagskrá.

Eins og komið hefur fram er félagi hans Brad Pitt í fyrsta sæti yfir leikara til að setja sig í hlutverk rannsóknarblaðamannsins Mikael Blomkvist. Pitt hefur sjálfur lýst yfir áhuga á hlutverkinu en nú þarf að láta tökurnar passa við dagskrá leikarans. Þær eru áætlaðar í október og er Fincher staddur í Svíþjóð að skoða tökustaði.

Ekki er búið að ráða í hlutverk tölvuhakkarans Lisbeth Salander og nú berast fregnir að fjöldinn allur af ungum Hollywood-stirnum keppist um að hreppa hnossið. Sagt var frá því um daginn að Carey Mulligan væri búin að tryggja sér hlutverkið en það er víst ekki rétt. Hún er aftur á móti ólm af áhuga og bauð meira að segja framleiðanda og handritshöfundi myndarinnar í hádegisverð til að ræða málin.

Meðal þeirra sem eru nú komnar í slag við Mulligan um hlutverk Salander eru Ellen Page, Keira Knightley, Scarlett Johannsen, Mia Wasikowska, Anne Hathaway, Natalie Portman, Olivia Thirlby og Kristen Stewart. Ellen Page sendi framleiðandanum meðal annars persónulegt bréf um daginn þar sem hún færði rök fyrir því að velja ætti hana.

Þetta er enginn smálisti en ekki er ljóst hvort nokkur þessarra verður fyrir valinu. Leikstjórinn hefur látið hafa eftir sér að sagan og persónan séu það flottar að ekki þurfi þekkt nafn til að leika Salander. Yfirmenn Sony-kvikmyndaversins hafa einnig tekið undir þetta en líklegt þykir að þeir beiti sér fyrir þekktri leikkonu til að auka tekjumöguleikana.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.