Körfubolti

Stoppa KR-konur Heather Ezell og Kiki Lund aftur í kvöld?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Heather Ezell.
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Heather Ezell. Mynd/Daníel
Annar leikur deildarmeistara KR og bikarmeistara Hauka í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna fer fram á Ásvöllum klukkan 19.15 í kvöld. KR er 1-0 yfir en það lið kemst í lokaúrslitin sem fyrr vinnur þrjá leiki.

KR vann fyrsta leikinn með 31 stigs mun, 78-47, þar sem liðið hélt atvinnumönnum Hauka í aðeins 15 stigum og 19 prósent skotnýtingu en þær Heather Ezell og Kiki Lund voru saman með 52,0 stig og 16,5 stoðsendingar að meðaltali í einvíginu á móti Grindavík.

Mesta athygli vakti varnarleikur Guðrúnar Gróu Þorsteinsdóttur á besta leikmann deildarinnar, Heather Ezell. Ezell skoraði aðeins 6 stig á þeim tæpu 29 mínútum sem hún var með Gróu á sér en hún klikkaði þá á 9 af 10 skotum sínum. Heather skoraði hinsvegar 9 stig og hitti úr 4 af 6 skotum sínum þær sjö mínútur sem Gróa sat á bekknum.

Heather Ezell og Kiki Lund í Grindavíkureinvíginu:

Leikir: 2

Sigrar: 2

Stig: 104 (52,0)

Stoðsendingar: 33 (16,5)

Skotnýting: 51,4 prósent (36 af 70)

Heather Ezell og Kiki Lund í KR-einvíginu:

Leikir: 1

Sigrar: 0

Stig: 15

Stoðsendingar: 8

Skotnýting: 18,5 prósent (5 af 27)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×