Golf

Tilkynnt um endurkomu Tiger í kvöld?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods.

Tim Finchem, umsjónarmaður PGA mótaraðarinnar, hefur boðað til blaðamannafundar í kvöld.

Þetta kemur sólarhring eftir að Finchem gaf til kynna að hann viti hvenær Tiger Woods snúi aftur til leiks.

Ekkert er uppgefið um efni fundarins en talið er líklegt að tilkynnt verði um hvenær Tiger snúi aftur á golf-völlinn.

Þessi stigahæsti kylfingur heimslistans er í fríi frá golfinu eftir vandamál utan vallar þar sem hann viðurkenndi framhjáhald sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×