Slapp frá mannræningjum og spurði um íþróttaálfinn 16. mars 2010 21:00 Móðir Sahil kyssir mynd af honum. Hún bíður eftir honum í Bretlandi.
Móðir Sahil Saeed, sem er fimm ára gamall, segir að það fyrsta sem drengurinn spurði sig að eftir að hann var látinn laus af mannræningjum í nótt, var hvar leikföngin hans úr Latabæ væru. Sahil var rænt af þremur vopnuðum mönnum í Pakistan þann 3. mars en þá dvaldi hann hjá ömmu sinni í bænum Jhelum. Ræningjarnir kröfðust 100 þúsund pund í lausnargjald sem fjölskyldan greiddi. Móðir Sahil, Akila Naqqash, er búsett í Bretlandi þar sem Sahil er fæddur og uppalinn. Eftir að fjölskyldan greiddi lausnarféð var drengurinn látinn laus og fannst hann gangandi á akri í Pakistan í nótt. Íþróttaálfurinn talar við nokkur börn á aldur við Sahil. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Það var svo í dag sem hann hringdi í móður sína sem var himinlifandi yfir að endurheimta son sinn en sjálf er hún stödd í Bretlandi. Hún segir í viðtali við BBC að drengurinn hafi borið sig mjög vel þrátt fyrir ótrúlegar raunir. Það fyrsta sem hann spurði mömmu sína að var hvar dúkka sem hann á af íþróttaálfinum væri, en það er Magnús Scheving sem leikur álfinn að öllu jöfnu. Svo bætti móðir hans við að drengurinn væri mikill aðdáandi Latabæjar. Mannránið þykir mjög sérstætt en breskir fjölmiðlar, sem hafa fylgst afar náið með málinu, hafa látið að því liggja að faðir drengsins sé á einhvern hátt ábyrgur fyrir ráninu. Móðir Sahil og faðir hans standa í mjög ljótum skilnaði þessa daganna. Nokkrir menn hafa verið handteknir í Pakistan grunaðir um verknaðinn, þeim hefur öllum verið sleppt. Þá voru fjórir lögreglumenn reknir eftir að þeir hunsuðu neyðarkall fjölskyldunnar þegar hún hugðist tilkynna mannránið. Lögreglan í Pakistan hefur ekki neinn í haldi vegna málsins en það er í rannsókn.
Mest lesið Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Tilbúinn að stíga til hliðar Erlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Erlent Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Erlent Fleiri fréttir Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Sjá meira