Lífið

Gaf kærustunni bíl

Simon Cowell er ríkur og unnustan fær að njóta þess.
Simon Cowell er ríkur og unnustan fær að njóta þess.
Simon Cowell er einn af ríkustu mönnunum í skemmtanabransanum og Mezhgan Hussainy, unnusta hans, nýtur góðs af því. Hussainy fagnaði 37 ára afmælinu sínu um daginn og Cowell kom færandi hendi með árgerð 1954 af Jaguar XK, fornbíl sem er metinn á hátt í 20 milljónir. Hann lét það ekki nægja og baðaði unnustuna í rauðum rósum, gaf henni frönsk undirföt, Prada-töskur og miklu meira. Samkvæmt heimildarmanni pressunnar vestanhafs gefur hann henni gjafir nánast daglega, en kórónaði svo allt á afmælisdaginn með sænsku nuddi á hótelherbergi þeirra í London.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.