Viðskipti innlent

Sitja uppi með hækkun á dreifigjaldi

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Fjölskyldur virðast ekki getað vikið sér undan gjaldskrárhækkuninni. Mynd/ Róbert.
Fjölskyldur virðast ekki getað vikið sér undan gjaldskrárhækkuninni. Mynd/ Róbert.
Fjögurra manna fjölskylda getur mest sparað sér um hundrað krónur á mánuði með því að skipta við annan smásala eftir gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Þeir sitja hins vegar uppi með stórfellda hækkun á dreifigjaldi Orkuveitunnar.

Kaup venjulegs heimilis á raforku eru í grófum dráttum tvíþætt. Annars vegar greiðir heimilið fyrir rafmagnið sjálft, en alls eru sex fyrirtæki starfandi í smásölu á rafmagni. Hins vegar greiðir það fyrir dreifingu á rafmagni, en á höfuðborgarsvæðinu og víðar er Orkuveita Reykjavíkur með sérleyfi á dreifingunni.

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitunni vann svar við fyrirspurn í maí síðastliðnum varðandi gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar. Þar segir að smásöluverð Orkuveitunnar þyrfti að hækka um 27 prósent, en dreifingin um 20 prósent til að mæta kröfum um bætta afkomu.

Svo fór hins vegar að raforkuverðið, sem samkeppni ríkir um, var hækkað um 11 prósent en dreifigjaldið, sem Orkuveitan situr ein að, um 40 prósent. Dreifigjaldið var þannig hækkað mun meira en raforkuverðið sjálft, þrátt fyrir að skuldir fyrirtækisins vegna raforkusölu séu margfalt meiri en vegna dreifingarinnar samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.

Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar, segir neytendur ekki geta vikið sér undan hækkunum á dreifigjaldinu, þó sölukostnaður geti lækkað með öðrum smásala.

Hann telur að fólk geti lækkað reikninginn vegna raforkunnar einnar í kring um fimm prósent miðað við þá kosti sem eru í boði eftir hækkun orkuveitunnar. Fjögurra manna fjölskylda í hundrað fermetra íbúð greiðir um 5800 króna rafmagnsreikning og þar af 1840 krónur fyrir söluhlutann. Þannig gæti fjölskyldan aðeins sparað um 92 krónur með því að skipta um raforkusala. Magnús gerir ráð fyrir að samkeppniseftirlitið og Orkustofnun fari yfir málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×