Enski boltinn

Glæsiskalli Park og vítaklúður Rooney - myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Man. Utd skellti sér aftur í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði Arsenal, 1-0, á Old Trafford.

Það var Ji-Sung Park sem skoraði eina mark leiksins með glæsilegum skalla.

Wayne Rooney fékk tækifæri til þess að klára leikinn en vítaspyrna hans var arfaslök og sigldi hátt yfir markið.

Hægt er að sjá öll tilþrif leiksins með því að smella á myndskeiðið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×