Golf

Geta fylgst með skori kylfinga í gegnum símann úti á velli

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Stefán Már Stefánsson úr GR.
Stefán Már Stefánsson úr GR. Fréttablaðið/Arnþór
Golfsamband Íslands hefur aukið þjónustu sína til muna fyrir áhugamenn um golf. Nú gerir GSÍ fólki kleift að fylgjast með skori kylfinga í beinni útsendingu á netinu, beint í síma.

"Það hefur verið skotið á okkur með upplýsingaflæðið, sérstaklega þeir sem koma á vellina, þeir eiga erfitt með að átta sig á því hver staðan er. Þetta er lítil áhugamannadeild og við getum ekki verið með beina lýsingu úti á velli þó að það sé hægt í tölvunni," segir Stefán Garðarsson, markaðs- og sölustjóri GSÍ.

"Þetta er góð leið til að fylgjast með. Þegar síðustu hollin eru að fara út verðum við með uppfærslu holu fyrir holu hvernig fer hjá hverjum kylfing. Draumurinn er að það komi högg fyrir högg, og sá hugbúnaður er reyndar til," sagði Stefán en kylfingar þurfa að fara á sérstaka síðu til að fá upplýsingarnar í gegnum 3G þjónustu.

Fyrsta mótið á Eimskips-mótaröðinni fer fram um helgina í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×