Sport

Þeir sem vildu styrkja fátæka fengu samband við kynlífslínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Morgunkornspakkinn frægi.
Morgunkornspakkinn frægi.

Einn hataðasti íþróttamaður Bandaríkjanna, Chad Ochocinco, lendir í vandræðum þó svo hann reyni að láta gott af sér leiða.

Ochocinco, sem leikur með Cincinnati Bengals í NFL-deildinni, framleiðir morgunkorn sem heitir einfaldlega Ochocinco´s og á að vera mjög hollt.

Á kassa morgunkornsins er hægt að finna símanúmer sem neytendur geta hringt í ef þeir vilja styrkja fátæk börn.

Hinir góðu samverjar sem það reyndu lentu heldur betur í óvæntri uppákomu.

Á hinum endanum svaraði nefnilega másandi kvenmaður sem var að selja aðgang að efni sem á ekkert skylt við að fæða fátæka. Þegar hún hafði lokið æsandi inngangi sínum bað hún að lokum um kreditkortanúmer ef menn vildu heyra meira.

Símanúmerið á morgunkornspakkanum er sem sagt númer hjá kynlífslínu og málið lítur ákaflega kjánalega út fyrir aumingja Ochocinco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×