Fótbolti

Van Gaal fær að eyða 30 milljónum evra

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Forráðamenn FC Bayern ætla að opna veskið þegar leikmannamarkaðurinn opnar á nýjan leik. Gengi Bayern í upphafi leiktíðar hefur valdið miklum vonbrigðum og það sætta menn sig illa við.

Louis Van Gaal, þjálfari liðsins, mun því fá 30 milljónir evra til þess að kaupa nýja leikmenn.

Bayern vantar vinstri bakvörð en bakverðir liðsins hafa ekki staðið undir væntingum í vetur. Þeir eru aftur á móti fáir á lausu sem stendur.

Van Gaal vill einnig fá nýjan miðvörð enda hefur varnarleikur liðsins ekki haldið nógu vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×