Fótbolti

Neuer orðaður við FC Bayern og Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Manuel Neuer.
Manuel Neuer.

Þýski markvörðurinn Manuel Neuer virðist vera á förum frá Schalke en hann hefur hingað til ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið en núverandi samningur rennur út árið 2012. Það þýðir að Schalke verður helst að selja hann næsta sumar ef hann fæst ekki til þess að skrifa undir nýjan samning.

Bæði FC Bayern og Man. Utd hafa verið orðuð við markvörðinn en Bayern er þó talinn líklegri áfangastaður.

Felix Magath, þjálfari Schalke, hefur hvatt Neuer til þess að vera áfram hjá félaginu þó svo hann fái meiri pening hjá Bayern.

"Ég held að hann viti að það væri sérstök ákvörðun í nútímafótbolta að halda áfram hjá Schalke. Manuel getur orðið enn betri markvörður ef hann heldur áfram hjá okkur. Hann er mikilvægur hlekkur hjá okkur og leiðtogi. Hjá Bayern yrði hann bara starfsmaður," sagði Magath.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×