Lífið

Snoop of reyktur fyrir hollenska tónlistarhátíð

Snoop varð ekki afhuga Hollandi vegna þessa vesens og ætlar áfram að heimsækja landið árlega.
Snoop varð ekki afhuga Hollandi vegna þessa vesens og ætlar áfram að heimsækja landið árlega.

Snoop Dogg er þekktur fyrir ást sína á plöntunni grænu - rétt eins og réttarkerfi Hollands. Honum var samt meinað að koma fram á fjölskylduhátíð þar í landi, en hyggst engu að síður heimsækja Holland árlega.

Bandaríska rapparanum Snoop Dogg hefur verið meinað að koma fram á tónleikum í Haag í Hollandi sem hann hafði verið bókaður á. Samkvæmt hollenskum fjölmiðlum er Snoop ekki nógu fjölskylduvænn fyrir hátíðina Parkpop sem fer fram í enda júní.

Yfirvöld í Haag ásamt lögreglunni þrýstu á aðstandendur hátíðarinnar að afbóka Snoop, en á meðal annarra listamanna á hátíðinni eru hin þýska Nena, sem sló gegn með laginu 99 Red Balloons og leik- og söngkonan Juliette Lews, sem spilaði eitt sinn á Iceland Airwaves-hátíðinni.

Parkpop-hátíðin leitar nú að listamanni til að fylla skarð Snoops, sem var þekktasta nafn hátíðarinnar. Hátíðin ku vera ein stærsta fjölskylduvæna tónlistarhátíð Evrópu en bandarískir fjölmiðlar furða sig á þessari ákvörðun þar sem ímynd Snoops þar í landi er frekar fjölskylduvæn. Hann hefur til að mynda stofnað ameríska fótboltadeild fyrir börn. Það má því gera ráð fyrir að stórbrotinn áhugi Snoops á grænu plöntunni hafi truflað lögreglu og yfirvöld - þrátt fyrir frjálslyndi Hollendinga á því sviði.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dyrum er lokað á trýnið á Snoop. Honum var bannað að koma til Bretlands fyrir tveimur árum, eftir að hafa valdið vandræðum á Heathrow-flugvellinum í London árið 2006. Eiturlyfja- og vopnaburðarbrot í Los Angeles hafa einnig orðið til þess að honum hefur verið meinað að ferðast til Ástralíu.

En hinn 38 ára gamli Snoop ferðast reglulega til Hollands af augljósum ástæðum og hyggst halda tónleika þar árlega, þó að hann fái ekki að koma fram á fjölskylduhátíðinni í Haag.








Tengdar fréttir

Snoop eins og reykskrímslið í Lost

Söngkonunni Katy Perry brá svo þegar rapparinn Snoop Dogg labbaði inn í hljóðver til hennar um daginn að hún líkir honum við reykskrímslið úr Lost.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.