Viðskipti erlent

Léttara andrúmsloft í stærsta hagkerfi Evrópu

Andrúmsloftið í þýska atvinnulífinu er allt að léttast samkvæmt Ifo vísitölunni sem mælir væntingar stjórnenda í 7.000 þýskum fyrirtækjum í hverjum mánuði en mælingar fyrir mars mánuði voru birtar nú í morgun.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að aðstæður í þýsku atvinnulífi hafi nú ekki verið betri síðan í júní 2008. Vísitala sem mælir mat á núverandi aðstæðum hækkar um 5% frá fyrri mánuði og vísitala sem mælir væntingar til framtíðarinnar hækkaði um 1% í mars frá fyrri mánuði.

Samræmd vísitala sem m.a. tekur mið að þessum tveimur þáttum og ætlað er að slá mati á umhverfi atvinnulífsins í heild hækkaði um 3% frá fyrri mánuði. Þetta þykir benda til þess að vetrarþunginn sé nú á undanhaldi og betri tíð sé framundan í þýskalandi eftir mjög langan og erfiðan vetur.

Þýska hagkerfið sem jafnframt er það stærsta í Evrópu hefur átt erfitt með að hrökkva í gang og stöðnun hefur einkennt síðustu mánuði hvað alla mælikvarða varðar. Núna er útlit fyrir að risinn ætli að skríða af stað á nýju en auk þess sem væntingar eru að glæðast eru vísbendingar um að iðnaðarframleiðsla sé að aukast á nýjan leik.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×