Innlent

Innri endurskoðun fer yfir styrki til Golfklúbbs Reykjavíkur

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur nýtt skattfé borgarbúa til þess að greiða niður yfirdrætti.
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur nýtt skattfé borgarbúa til þess að greiða niður yfirdrætti.

Innri endurskoðun fer nú yfir efndir á fyrri samningum við Golfklúbb Reykjavíkur vegna upplýsinga úr ársreikningum klúbbsins um að framkvæmdastyrkir frá Reykjavíkurborg hafi verið teknir til annarra nota en framkvæmda samkvæmt samningnum auk þess sem umsamið "mótframlag" klúbbsins hafi ekki verið lagt í framkvæmdir í samræmi við samninginn.

En það var Stöð 2 sem greindi frá málinu á fimmtudaginn. Um er að ræða alls 144 milljónir króna auk verðbóta, að því er fram kemur í ársreikningnum GR, sem er undirritaður af stjórn og endurskoðendum. Svo virðist sem hluti af fénu hafi verið nýtt til þess að greiða niður yfirdrátt klúbbsins.

Athugun Innri endurskoðunar borgarinnar hlýtur einnig að verða að ná til aðdraganda þessarar 230 milljóna tillögu borgarstjóra segir í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar. Þess má geta að samningur um fjármögnun á framkvæmdum golfvallarins, voru ákveðin árið 2006.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, sagði í viðtali við Vísi í gærkvöldi að hún hygðist leita skýringa á því hvernig golfklúbburinn ráðstafaði fénu.


Tengdar fréttir

Vilhjálmur: Golfið kemur ekki í stað vinnu

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist alls ekki vera þeirrar skoðunar að golfíþróttin geti komið í staðin fyrir atvinnu. Orð hans á borgarstjórnarfundi í dag um að stærri golfvöllur yrði mikilvægt tómstundasvæði fyrir atvinnulausa hafa vakið athygli, svo ekki sé dýpra í árina tekið.

Stóra golfvallarmálið: Mikilvægt tómstundasvæði fyrir atvinnulausa

„Skammarlega lág fjárhagsaðstoð hefur í för með sér að fjöldi fólks leitar aðstoðar líknarfélaga,“ sagði Sóley Tómasdóttir, Vinstri-grænum, í umræðum um styrk til Golfklúbbs Reykjavíkur, til að stækka golfvöll félagsins. 230 milljóna króna framlag borgarinnar til klúbbins hefur nú verið rætt í Borgarstjórn ríflega klukkustund.

Hanna Birna krefst skýringa frá GR

„Þær upplýsingar sem borginni hafa borist kalla á skýringar og eftir þeim skýringum hefur þegar verið óskað, bæði innan borgarkerfisins og við forsvarsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur. Reynist það rétt að fjármagni frá

Formaður GR: Þurfum birtu yfir framtíðina

Tilveran snýst ekki bara um eymd og volæði, við þurfum líka birtu yfir framtíðina, segir Jón Pétur Jónsson, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur sem hafnar þeirri gagnrýni minnihlutans í borgarstjórn að það sé furðuleg forgangsröðun að eyða peningum í að stækka golfvöll á sama tíma og skorið er niður í leik- og grunnskólum.

Styrkveiting til GR í uppnámi

Styrkveiting til Golfklúbbs Reykjavíkur er í uppnámi eftir að borgarráð var upplýst í dag um að klúbburinn hefði síðustu þrjú ár þegið 210 milljónir króna frá borginni til ákveðinna framkvæmda en notað hátt í helming fjárins til að lækka yfirdrátt og aðrar skuldir. Málið er nú í höndum innri endurskoðunar borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×