Fótbolti

Pato með þrennu - Zlatan skoraði sjálfsmark

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pato fagnar einu marka sinna í dag.
Pato fagnar einu marka sinna í dag. Nordic Photos / AFP

Brasilíumaðurinn Pato var hetja AC Milan sem vann 3-1 sigur á Chievo í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Pato skoraði öll þrjú mörk AC Milan í dag, þar af tvö í fyrri hálfleik.

Zlatan Ibrahimovic varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í dag en Pato innsiglaði sigur AC Milan með marki í uppbótartíma.

Milan komst á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar með sigrinum í dag, um stundarsakir að minnsta kosti. Lazio er stigi á eftir og á leik til góða gegn Bari annað kvöld.

Inter og Napoli koma næst með ellefu stig, þremur á eftir AC Milan, og eiga einnig leik til góða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×