Golf

Mickelson sigraði Masters

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Argentínumaðurinn Angel Cabrera, sem vann Masters í fyrra, læðir hér Mickelson í græna jakkann góða.
Argentínumaðurinn Angel Cabrera, sem vann Masters í fyrra, læðir hér Mickelson í græna jakkann góða. Nordic Photos/AFP

Phil Mickelson vann glæsilegan sigur á Masters-mótinu í golfi sem lauk nú í kvöld. Mickelson lék afar gott golf í dag og vann verðskuldað. Þetta er í þriðja sinn sem Mickelson vinnur Masters.

Mickelson lék á samtals 16 höggum undir pari og var búinn svo gott sem búinn að tryggja sér sigurinn fyrir lokaholuna. Hann lét sig nú ekki samt muna um að næla sér í fugl á lokaholunni.

Lee Westwood spilaði mjög stöðugt golf allan daginn en missti Mickelson fram úr sér. Tveim höggum munaði á þeim fyrir lokaholuna sem var of mikið þar sem Mickelson gerði engin mistök þar.

Tiger Woods átti skrykkjótan dag. Byrjaði mjög illa en kom svo til baka með látum. Það vantaði stöðugleika í spilamennskuna og hann tapaði höggum þegar hann mátti ekki við því. Hann lék þó á 3 höggum undir pari í dag og á 11 höggum undir pari samtals.

Anthony Kim átti ótrúlegan dag og kom í hús á 7 höggum undir pari og 12 höggum undir pari samtals.

Lokastaða efstu manna:

Phil Mickelson -16

Lee Westwood -13

Anthony Kim -12

Tiger Woods -11

KJ Choi -11








Fleiri fréttir

Sjá meira


×