Innlent

Morð í Hafnarfirði: Karlmaður að nýju í haldi lögreglu

Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar á morðinu á Hannesi Helgasyni.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var húsleit gerð á heimili mannsins í Hafnarfirði í gærkvöld, en hann er einn þriggja sem lögreglan hefur haft í haldi yfir nótt vegna rannsóknarinnar.

Vefmiðillinn Pressan hefur eftir sjónarvottum að starfsmenn tæknideildar lögreglunnar hafi verið með í för þegar húsleitin var gerð um ellefuleitið í gærkvöldi.

Maðurinn er Íslendingur á þrítugsaldri og tengist unnustu Hannesar heitins. Lögreglan mun á allra næstu klukkustundum taka ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir manninum.




Tengdar fréttir

Morðrannsókn í Hafnarfirði: Fréttaskýring

Hannes Þór Helgason keyrði einn heim til sín eftir að hafa skutlað kærustu sinni niður í miðbæ Reykjavíkur nóttina sem hann var myrtur á heimili sínu

Rannsókn á morði heldur áfram

Enginn hefur verið handtekinn síðustu daga í tengslum við rannsókn lögreglunnar á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani síðustu helgi.

Rannsóknin teygir anga sína til Litháens

Rannsókn lögreglu á andláti Hannesar Þórs Helgasonar teygir anga sína til Litháens, en hann átti í viðskiptum þar í landi undanfarið. Hannes kom heim frá Litháen á föstudag, rúmum sólarhring áður en hann fannst látinn.

Hannes reyndi að verjast árásinni

Hannes Þór Helgason var með áverka á höndum sem benda til þess að hann hafi reynt að verjast árás morðingja síns. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu.

Morðið í Hafnarfirði: Karlmaður í haldi

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni. Hann hefur ekki verið yfirheyrður áður í tengslum við morðið.

Hannes jarðsunginn á fimmtudag

Hannes Þór Helgason sem myrtur var á heimili sínu fyrir rúmri viku verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á fimmtudaginn.

Boðað til blaðamannafundar vegna morðrannsóknar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til fréttamannafundar klukkan tvö í dag. Þar verður farið almennt yfir stöðu rannsóknarinnar á andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem ráðinn var bani síðastliðinn sunnudag.

„Þörfnumst þess að málið sé upplýst"

Útför Hannesar Þór Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu á sunnudaginn fyrir viku fór fram í dag. Fjöldi listamanna söng við afhöfnina. Kirkjan var þétt setin.

Morðrannsóknin: Þriðji karlmaðurinn látinn laus

Karl á fertugsaldri, sem verið hefur í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því gær vegna rannsóknar á andláti Hannesar Þórs Helgasonar, hefur verið látinn laus.

Kertum fleytt í minningu Hannesar Þórs Helgasonar

Mörg hundruð manns söfnuðust saman við lækinn í Hafnarfirði í kvöld til að minnast Hannesar Þórs Helgasonar sem myrtur var á heimili sínu fyrir um viku. Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið. Kertum var fleytt á lækinn og Flensborgarkórinn söng lög. Fjölskylda Hannesar var meðal viðstaddra og einkenndi mikill samhugur og samkennd þessa minningarstund.

Skil einfaldlega ekki hver getur gert svona

„Ég skil einfaldlega ekki hver getur gert svona. Ég bara sit og bíð eftir því að þessi manneskja finnist,“ segir unnusta Hannesar Þórs Helgasonar í samtali við Fréttablaðið. Hún vildi ekki koma fram undir nafni.

KFC og Góu lokað vegna útfarar Hannesar

Vegna útfarar Hannesar Þórs Helgasonar, sem myrtur var á heimili sínu í Hafnarfirði fyrir ellefu dögum, verður lokað í dag hjá Sælgætisgerðinni Góu-Lindu, á veitingastöðum KFC og Taco Bell ásamt skrifstofum þessara fyrirtækja. Hannes verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag klukkan 13.

Fjölmenni við útför Hannesar

Fjölmenni var við útför Hannesar Þórs Helgasonar sem var gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði klukkan eitt í dag. Færri komust að í kirkjunni en vildu og var athöfninni því varpað á skjá í íþróttasal Víðistaðaskóla.

Morðrannsókn: Tilviljun að Hannes var einn heima

Tilviljun ein virðist hafa ráðið því að yngsta systir Hannesar Þórs Helgasonar sem myrtur var á heimili sínu um síðustu helgi, var ekki á heimilinu umrædda nótt, en hún hefur undanfarið búið hjá bróður sínum. Enginn er nú í haldi lögreglu vegna málsins.

Gögn rannsökuð um helgina

Ekkert nýtt kom fram um helgina og enginn var yfirheyrður í tengslum við rannsókn lögreglu á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni fyrir viku. „Helgin var nýtt til rannsókna á gögnum,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar. Hann vildi ekki tjá sig nánar um málið en vísaði til upplýsinga, sem fram komu á blaðamannafundi á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×