Fótbolti

Frábært að Ribery fór í bann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Louis Van Gaal, þjálfari FC Bayern, er hæstánægður með það að franska knattspyrnusambandið hafi sett leikmann félagsins, Franck Ribery, í þriggja leikja bann. Hann telur að það sé gott fyrir Bayern.

Ribery var mikið meiddur á síðustu leiktíð og var aldrei upp á sitt allra besta.

"Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur. Nú getur hann haldið áfram að koma sér í sitt besta form. Þetta er gott fyrir okkur sem og Franck," sagði Van Gaal sem er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×