Fótbolti

Jancker ætlar að leggja skóna á hilluna næsta sumar

Ómar Þorgeirsson skrifar
Carsten Jancker.
Carsten Jancker. Nordic photos/AFP

Framherjinn Carsten Jancker hefur tilkynnt að hann hafi hug á því að leggja skóna á hilluna frægu næsta sumar þegar samningur hans við Mattersburg rennur út.

Hinn 35 ára gamli Jancker var fastamaður í þýska landsliðinu á árunum 1998-2002 og skoraði þá 10 mörk í 33 landsleikjum.

Jancker var sigursæll með Bayern München en hann lék með liðinu á árunum 1996-2002 og skoraði 48 mörk í 143 leikjum fyrir félagið.

Hjá Bayern München vann hann fjóra deildarmeistarartitla og einn meistaradeildartitil en hann og Brasilíumaðurinn Giovane Elber mynduðu eitt eitraðasta sóknarpar í heimi á þeim árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×