Lífið

Vinkonur smygla sér á rauða dregilinn

Vinkonurnar náðu að smygla sér í gegnum öryggisverðina á forsýningu Twilight: Eclipse.
Vinkonurnar náðu að smygla sér í gegnum öryggisverðina á forsýningu Twilight: Eclipse.
„Við vorum ekki nema um tíu metra frá öllum stjörnunum," segir Birgitta Líf Björnsdóttir, 17 ára nemi við Verzlunarskóla Íslands.

Birgitta Líf er nú stödd í Los Angeles ásamt vinkonum sínum, Evu Dögg Þórisdóttur og Elísabetu Hönnu Maríudóttur. Vinkonurnar, sem allar eru á átjánda ári og stunda allar nám við Verzlunarskóla Íslands, eyða mánuði í borginni nú í sumar. Þriðja myndin í Twilight-seríunni var frumsýnd á dögunum og stelpurnar komu sér inn með klókindum.

„Við vorum búnar að taka eftir tjaldborginni fyrir utan Nokia Theatre í nokkra daga. Við erum ekki það miklir aðdáendur en ákváðum samt að kíkja á forsýninguna," segir Birgitta. „Við komum þangað hálftíma fyrir sýningu og með ótrúlegum hætti náðum við að bulla okkur í gegnum alla öryggisverðina og enduðum á frábærum stað - mun betri stað en þeir sem höfðu tjaldað í marga daga.

Birgitta Líf og stelpurnar eru búnar að vera í Los Angeles í þrjár vikur, en þær strituðu í vetur til að eiga fyrir ferðinni. „Við erum búnar að vinna fyrir þessari ferð í allan vetur til að borga þetta sjálfar," segir Birgitta. Vinkonurnar ætluðu að leigja sjálfar íbúð en voru svo heppnar að fá að gista hjá íslenskri konu sem býr í Los Angeles.

„Það eru endalausar sögur af því sem við erum búnar að upplifa. Við fórum í viðtal bæði í útvarpsþátt og tvo netþætti og fórum til Las Vegas," segir Birgitta. „Við upplifðum stemninguna í kringum úrslitaleikinn í körfubolta þar sem LA Lakers vann. Við fórum í UCLA og bönkuðum upp á í systra- og bræðrafélagshús þar og fengum að skoða okkur um. Við erum búnar að sjá helling af stjörnum og hittum til dæmis leikkonuna Amber Stevens sem leikur í uppáhalds þáttunum okkar, Greek." - ls






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.