Nýtt heimsmet á smábáti er 1.729 tonn 4. september 2010 06:15 Áhöfnin á Sirrý Sigurgeir þakkar góðri útgerð og úrvals fólki góðan árangur. mynd/jenný
Áhöfnin á Sirrý ÍS-84 frá Bolungarvík, sem er fimmtán tonna línubátur, færði að landi 1.729 tonn af blönduðum afla á síðasta fiskveiðiári. Vilja menn fyrir vestan meina að um heimsmet sé að ræða í aflabrögðum báts í þessum stærðarflokki. Gamla heimsmetið átti Guðmundur Einarsson ÍS sem er í eigu sama útgerðarfélags, Jakobs Valgeirs ehf. Guðmundur Einarsson landaði 1.500 tonnum á fiskveiðiárinu 2005/2006 en bætti það met reyndar í ár og landaði tæpum 1.600 tonnum. Sigurgeir S. Þórarinsson, skipstjóri á Sirrý, sem var á landleið þegar Fréttablaðið hafði samband um borð, segir að þrír sjómenn séu um tvær fastar stöður um borð. „Við erum fjóra daga á sjó og eigum svo tvo daga í frí. Báturinn er hins vegar aldrei hvíldur.“ Sirrý ÍS fór í 297 róðra á fiskveiðiárinu. Sigurgeir þakkar árangurinn góðu fólki, bæði til sjós og lands, en átta sjá um að beita fyrir Sirrý. Aflinn er að uppistöðu góðfiskur, þorskur og ýsa, sem unninn er í landvinnslu Jakobs Valgeirs. Sigurgeir segir það ekki fyrir hvern sem er að færa vel á annað þúsund tonn að landi við þriðja mann. „Við erum góðir í bakinu, má segja.“ Um heimsmetið segir Sigurgeir að nú hafi aðrir smábátasjómenn verðugt verkefni. „Nú vita þessir karlar að hverju er að stefna. Ég slæ þetta met alla vega ekki sjálfur.“ - shá
Mest lesið Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Arctic Fish Viðskipti innlent Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Viðskipti innlent Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Atvinnulíf Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Viðskipti innlent Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Viðskipti innlent Amazon í samkeppni við SpaceX í geimnum Viðskipti erlent Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Viðskipti innlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Fjármögnun tryggð fyrir nýrri landeldisstöð Samherja Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sjá meira