Fótbolti

Þjálfari Schalke biður Raul afsökunar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það hefur ekki gengið vel hjá Raul og félögum.
Það hefur ekki gengið vel hjá Raul og félögum.

Spænski framherjinn Raul er aðalstjarna þýska liðsins Schalke. Það kristallast í því að þjálfari liðsins, Felix Magath, hefur beðið leikmanninn afsökunar á því hversu illa liðinu hefur gengið í upphafi leiktíðar.

Schalke hefur aldrei í sögu félagsins byrjað eins illa og í vetur og þegar er farið að hitna undir Magath.

"Við erum ekki að komast nógu oft inn í vítateig andstæðinganna. Við erum einfaldlega ekki að komast nógu mikið fram völlinn. Fyrirgefðu, Raul," sagði Magath en þessi afsökunarbeiðni er ein sú allra sérstakasta sem heyrt hefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×