Golf

Golfmót sýnt í þrívídd

Elvar Geir Magnússon skrifar
Þetta fólk getur horft á golf í þrívídd í apríl.
Þetta fólk getur horft á golf í þrívídd í apríl.

Brotið verður blað í næsta mánuði þegar sýnt verður beint frá íþróttaviðburði í sjónvarpi í þrívídd.

Tveir klukkutímar á hverjum keppnisdegi Masters-mótsins á Augusta verða sendir út í þrívídd í Bandaríkjunum. Sérstök þrívíddarsjónvörp þarf til að geta horft á útsendinguna en mjög fáir Bandaríkjamenn eiga þannig tæki í dag.

Einnig verður hægt að horfa á þrívíddarútsendinguna gegnum heimasíðu mótsins. Eins og áður sagði er þetta í fyrsta sinn sem sjónvarpað er frá íþróttaviðburði í þrívídd en áður hefur verið boðið upp á þrívíddarútsendingar frá enska boltanum á krám og í kvikmyndahúsum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×