Lífið

Nýtt myndband Steinda Jr. endar í blóðbaði

Tinni Sveinsson skrifar

Fimmti þáttur af grínþættinum Steindanum okkar fór í loftið á föstudag. Steindi Jr. brást ekki aðdáendum sínum og var þátturinn drepfyndinn með mörgum óborganlegum atriðum.

Tónlistaratriðin í lok þáttanna eru orðin mjög vinsæl og bíður fólk þess í ofvæni að fá að sjá þau á netinu þegar líða tekur á vikuna. Fyrst kom lagið Newcastle United, svo Bransasögur, í síðustu viku lék Þorsteinn Guðmundsson snarbrjálaðan prest í Faðir Thug og nú er komið nýtt lag, Geðveikt fínn gaur.

„Þetta lag mun vonandi starta hreyfingu, þar sem ást tveggja gagnkynhneigðra karlmanna er í hávegum höfð. Age of bromance," segir leikstjórinn Ágúst Bent um lagið, sem er til dæmis komið í spilun á FM 957.



Í laginu hittir Steindi fyrir annan grínista, Ásgeir Orra Ásgeirsson. Steindi kannast við Ásgeir úr grínsketsum sem hann gerði í Verzlunarskólanum og Ásgeir er sömuleiðis aðdáandi Steinda.

Þeir hæla hvor öðrum í hástert en lenda á villigötum þegar þeir vilja sýna hversu vel þeir kunna við hvorn annan með því að taka söngvarann Friðrik Dór höndum. Myndbandið endar í blóðbaði og er því rétt að vara viðkvæma við því.

Hér má sjá Geðveikt fínan gaur.




Tengdar fréttir

Davíð Oddsson hafnaði bón Steinda Jr.

„Davíð passaði svo vel í þetta hlutverk. Hann átti að vera einn af nokkrum vinum persónu sem kallast Faðir Thug,“ segir grínistinn Steindi Jr. Þátturinn Steindinn okkar hóf göngu sína á Stöð 2 síðasta föstudag. Steindi er þekktur fyrir að fá alls kyns fólk til að koma fram í þáttunum og ætlaði að fá Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins, til að leika sjálfan sig í stuttu atriði.

Steindinn okkar bannaður innan 12 ára

Gamanþátturinn Steindinn okkar hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn er á dagskrá eftir klukkan níu og er bannaður innan tólf ára.

Jói Fel og Páll Óskar í hnífaslag | Myndir

Jói Fel og Páll Óskar hittust niðri á bryggju á Grandanum í vikunni. Páll Óskar var vopnaður hníf og Jói vínarbrauðum þegar þeir tóku upp atriði fyrir Steindann okkar.

Hausinn á Jóa Fel sprakk eftir bardagann

Hnífabardagi Jóa Fel og Páls Óskars var hluti af sprenghlægilegu myndbandi sem nú er komið á Netið. Bransasögur heitir rapplagið þar sem Steindi Jr. segir vinum sínum skrautlegar sögur við gerð þáttanna Steindinn okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.