Íslensk nöfn tungubrjótur hjá erlendum fréttamönnum Óli Tynes skrifar 16. apríl 2010 15:09 Múhaha, ay-yah-FYAH'-plah-yer-kuh-duhl, múhaha.
Erlendir fréttamenn hafa plummað sig ágætlega við að bera fram íslensk nöfn eins og Hekla, Katla og Keflavik Airport. Eyjafjallajökull hefur hinsvegar reynst þeim nokkur tungubrjótur. Þeir fá því skriflegar leiðbeiningar um hvernig á að bera nafnið fram og hvar áherslurnar eiga að vera. Þessar leiðbeiningar líta svona út: (Og reynið þið nú að bera ÞETTA fram Íslendingar góðir. Eyjafjallajokull (ay-yah-FYAH'-plah-yer-kuh-duhl) Þetta minnir dálítið á í gamla daga þegar þegar Ameríkanarnir á Vellinum fóru í sunnudagsbíltúr austur fyrir fjall og heimsóttu meðal annars Hveragerði. Eða Hurdygurdy, eins og þeir kölluðu bæinn. Snilldarleg björgun var það hinsvegar þegar einhver íslenskur framámaður fór í bíltúr um Reykjavík með Konrad Adenauer kanslara Vestur-Þýskalands. Verið var að sýna kanslaranum merkar byggingar og stofnanir. Það var ekið framhjá Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Og kanslarinn spurði; Was ist das? Das ist DAS, svaraði íslendingurinn. Bretar eru hinsvegar snillingar í orðaleikjum og fljótlega eftir að askan úr Eyjafjallajökli fór að berast upp að ströndum þeirra var skilaboðum komið áleiðis til Íslands: We said CASH not ASH.
Mest lesið Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Innlent Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Stöðugt gos og engir skjálftar Innlent Fleiri fréttir Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Sjá meira