Vitnum talin stafa veruleg hætta af mansalsmönnum 5. janúar 2010 05:00 Hæstiréttur. Mennirnir skulu sæta áfram gæsluvarðhaldi til 26. janúar.
Vitnum í mansalsmálinu á Suðurnesjum er talin stafa veruleg hætta af fimm karlmönnum sem sitja inni vegna málsins, að því er fram kemur í kröfu ríkissaksóknara yfir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Ríkissaksóknari vísar til hættumats greiningadeildar Ríkislögreglustjóra hvað þetta varðar. Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að mennirnir fimm, allir litháískir, skuli sæta gæsluvarðhaldi til 26. janúar. Þeir hafa verið ákærðir fyrir mansal gagnvart nítján ára litháískri stúlku. Þá eru sumir úr hópnum ákærðir fyrir hylmingu, líkamsárásir, hótanir og kynferðisbrot. Mennirnir hafa allir setið í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins frá 14. október. Málið sé mjög umfangsmikið og hafi rannsókn þess teygt anga sína víða. Fyrir liggi rökstuddur grunur um að þeir tengist allir glæpasamtökum í Litháen, en þeir séu ríkisborgarar þar í landi. Þá sé vísað til þess að mennirnir séu erlendir ríkisborgarar og hætta þyki vera á því að þeir muni reyna að komast úr landi eða leynast eða koma sér með öðrum hætti undan málssókn.- jss
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira