Golf

GSÍ eflir verkefni afrekskylfinga á nýjan leik

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Ólafur Björn Loftsson, Íslandsmeistari árið 2009.
Ólafur Björn Loftsson, Íslandsmeistari árið 2009. Fréttablaðið/Pjetur
Golfsamband Íslands hefur ákveðið að efla á nýjan leik verkefni afrekskylfinga frá Íslandi. Verkefnin voru skorin niður á síðasta ári vegna efnahagsástandsins.

Verkefnin sem GSÍ mun ráðast í á þessu ári eru meðal annars Evrópumót karla og kvenna, þar sem send eru lið bæði í karla og kvennaflokki. Sex leikmenn skipa liðið í hvorum flokki.

Í Ungverjalandi verða íslenskir kylfingar í júlí á European Young Masters þar sem 16 ára og yngri keppa og 18 ára og yngri keppa svo í Duke of York í september.

Þá verða sendir sex keppendur, þrjár konur og þrír karlar, á Heimsmeistaramótið í Argentínu í október. Líklegt er að þar verði fyrirferðamiklir kylfingar sem stunda nám í Bandaríkjunum, þar sem töluvert ódýrara er að senda þá þaðan heldur en alla leið frá Íslandi.

Auk þessa verkefna er GSÍ að skoða fleiri verkefni til að senda íslenska kylfinga í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×