Lífið

Allir eiga rétt á að giftast þeim sem þeir elska - myndir

Ellý Ármanns skrifar
„Okkur finnst ekki leiðinlegt að spila í útlöndum svo þetta er bara draumur í dós. Noregsferðin var frábær í alla staði, við spiluðum í Rockefeller Music Hall sem var mögnuð upplifun,"
„Okkur finnst ekki leiðinlegt að spila í útlöndum svo þetta er bara draumur í dós. Noregsferðin var frábær í alla staði, við spiluðum í Rockefeller Music Hall sem var mögnuð upplifun,"

Elektra var aðalbandið á stelpnakvöldi Oslopride á laugardaginn var. Svo virðist sem stelpurnar hafi eignast talsverðan aðdáendahóp í Noregi því þegar I don´t do boys var spilað söng salurinn hástöfum með.

„Við höfum verið að fá athygli erlendis frá sem hefur komið skemmtilega á óvart og við erum mjög spenntar að sjá hvað kemur út úr því," sagði Nana Alfreðsdóttir meðlimur Elektru spurð út í ferðalagið.

„Það komu tæplega 1500 manns á tónleikana, fólkið söng með, kunni textana og það var tryllt stemmning."

„Okkur finnst ekki leiðinlegt að spila í útlöndum svo þetta er bara draumur í dós. Noregsferðin var frábær í alla staði, við spiluðum í Rockefeller Music Hall sem var mögnuð upplifun,"

„Það komu tæplega 1500 manns á tónleikana, fólkið söng með, kunni textana og það var tryllt stemning. Við gætum ekki verið glaðari með undirtektirnar. Gaman að fá að prófa að vera rokkstjarna eina helgi í Osló. Við gætum alveg vanist þessu," sagði hún.

„Við Elektrur ætlum svo að sjálfsögðu að spila á styrktarballinu fyrir Hinsegin daga 10.júlí og á Gay Pride hátíðinni."

Hjúskaparlögin á Íslandi

„Við erum mjög ánægðar með þetta og stoltar af því hvað barátta samkynhneigðra er komin vel á veg hérna á Íslandi," sagði Nana þegar talið barst að hjúskaparlögunum hér á landi.

„Auðvitað eiga allir rétt á að giftast þeim sem þeir elska hvort sem það er maður eða kona. Annað er bara rugl."

Hér má sjá myndir sem teknar voru á ferðalagi þeirra í Osló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.