Innlent

Eignir Jóns Ásgeirs enn kyrrsettar

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar

Eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hér á landi hafa verið kyrrsettar þrátt fyrir að tollstjóri hafi dregið kyrrsetningarbeiðni sína til baka. Sýslumaður hefur samþykkt kyrrsetningarbeiðni Glitnis banka á hendur honum.

Skilanefnd Glitnis stefndi Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni og Lárusi Welding rétt fyrir páska. Þeim Jóni Ásgeiri og Pálma er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína sem einir af stærstu hluthöfum Glitnis til að hagnast persónulega um tvo milljarða króna. Lárus, sem var forstjóri bankans, er sakaður um að hafa umbúðalaust framkvæmt skipanir þeirra félaga.

Skilanefndin krefst sex milljarða í skaðabætur. Í tengslum við þetta mál krafðist skilanefndin kyrrsetningar á eignum þeirra hér á landi. Að auki hefur slitastjórn Glitnis höfðað mál gegn þeim og fleirum í New York og krafist kyrrsetningar, hjá breskum dómstóli, á eignum Jóns Ásgeirs um allan heim.

Samkvæmt þinglýstum gögnum frá Sýslumanni sem fréttastofa hefur undir höndum hafa eignir Jóns Ásgeirs verið kyrrsettar vegna þessa máls. Þær eignir sem um ræðir eru m.a. húseignir, glæsibifreiðar, jarðir, bankainnstæður og eignarhlutur í félaginu Þú Blásól. Samtals upp á rúmar 196,5 milljón króna. Kyrrsetningarbeiðnin hljóðaði aftur á móti upp á sex milljarða og vantar því um 5,8 milljarða upp á.

Í fréttum okkar í gær kom fram að tollstjóri hefði fallið frá kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs og tveggja annarra stjórnarmanna FL Group eftir að að dómstólar felldu úr gildi ákvörðun sýslumanns um kyrrsetningu eigna fjórða mannsins. Mun þetta ekki breyta þeirri staðreynd að eignir Jóns Ásgeirs eru kyrrsettar, eina breytingin er sú að Glitnir banki á nú ríkari kröfu á eignir hans en skattrannsóknarstjóri.

Ekki fást upplýsingar um hvernig kyrrsetningarmál þeirra Pálma og Lárusar standa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×