Íslenski boltinn

Heil umferð í Pepsi-deild kvenna í kvöld

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, á erfitt verkefni fyrir höndum fyrir norðan.
Freyr Alexandersson, þjálfari Vals, á erfitt verkefni fyrir höndum fyrir norðan. Fréttablaðið
Fjórða umferð Pepsi-deildar kvenna verður leikin í kvöld. Stórleikur kvöldsins er á Akureyri þar sem Íslandsmeistarar Vals verða í heimsókn hjá Þór/KA.

Þór/KA og Valur eru í tveimur efstu sætum deildarinnar og þau einu sem hafa ekki tapað. Valur er með fullt hús stiga, níu stig, en Þór/KA sjö.

KR og Breiðablik mætast í Frostaskjólinu en liðin eru í þriðja og fimmta sæti deildarinnar.

Leikurinn á Akureyri hefst klukkan 19 en aðrir leikir klukkan 19.15.

Leikir kvöldsins:

Þór/KA - Valur

KR - Breiðablik

FH - Fylkir

Stjarnan - Haukar

Afturelding - Grindavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×