Golf

Tom Watson fer vel af stað - Allra augu á Tiger

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tom Watson fer gríðarlega vel af stað á Masters-mótinu. Stöð 2 Sport sýnir beint frá mótinu.
Tom Watson fer gríðarlega vel af stað á Masters-mótinu. Stöð 2 Sport sýnir beint frá mótinu.

Hinn gamalreyndi Tom Watson sýndi skínandi spilamennsku á Masters í dag og kom í hús á fimm höggum undir pari. Þessi sextíu ára gamli kylfingur er í forystu sem stendur ásamt Lee Westwood, Phil Mickelson og Y.E. Yang semeru einnig á fimm höggum undir.

Tiger Woods er farinn af stað og þegar þetta er skrifað er hann á einu höggi undir pari eftir fjórar holur. Fjölmargir áhorfendur fylgjast með hverju skrefi hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×