Lífið

Siggi Hall: Á ég að grilla kellinguna þína eða hvað?

Tinni Sveinsson skrifar
Siggi Hall ræðst á gestina sem eru ekki einu sinni búnir að fá matinn sinn.
Siggi Hall ræðst á gestina sem eru ekki einu sinni búnir að fá matinn sinn.

Þá sem grunaði að Steindi Jr. væri búinn að tæma brunninn sinn komust fljótt að því að svo var ekki þegar sjötti þáttur af Steindanum okkar fór í loftið á Stöð 2 á föstudaginn var þar sem lagið Djöfull er mér heitt var frumflutt.

Vinsældir Steinda höfðu áður náð nýjum hæðum í síðustu viku með laginu Geðveikt fínn gaur. Það fór í spilun á FM 957 og er nú fáanlegt á tonlist.is. Geðveikt fínn gaur náði einnig hinum miklu vinsældum hnífaslags Páls Óskars og Jóa Fel úr laginu Bransasögur í áhorfi á netinu.
Steindi fær brjálæðiskast á elliheimili.

Á föstudaginn spilaði Steindi síðan lagið Djöfull er mér heitt og er óhætt að segja að endakaflinn á því sé með því fyndnara sem sést hefur í þáttunum.

Í laginu leikur Steindi bugaðan skrifstofumann sem er við það að fara yfirum, svipaðan þeim sem Michael Douglas gerði ódauðlegan í myndinni Falling Down. Steindi fer í Hagkaup og tekur æðiskast, hann fríkar einnig út á rauðu ljósi og ræðst á strákana í hljómsveitinni Retro Stefsson.

Þaðan liggur leiðin á elliheimili og loks í Þjóðleikhúskjallarann þar sem Siggi Hall ræður ríkjum. Þar hittir Steindi ofjarl sinn því Siggi Hall gjörsamlega gengur af göflunum. Sjón er sögu ríkari, hér má sjá Djöfull er mér heitt.

Næsti þáttur af Steindanum okkar er á dagskrá á Stöð 2 á föstudaginn klukkan 21.20.

Kíkið einnig á óborganlegu myndböndin við Faðir Thug, Newcastle United, Geðveikt fínn gaur og Bransasögur.


Tengdar fréttir

Steindinn okkar bannaður innan 12 ára

Gamanþátturinn Steindinn okkar hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn er á dagskrá eftir klukkan níu og er bannaður innan tólf ára.

Jói Fel og Páll Óskar í hnífaslag | Myndir

Jói Fel og Páll Óskar hittust niðri á bryggju á Grandanum í vikunni. Páll Óskar var vopnaður hníf og Jói vínarbrauðum þegar þeir tóku upp atriði fyrir Steindann okkar.

Hausinn á Jóa Fel sprakk eftir bardagann

Hnífabardagi Jóa Fel og Páls Óskars var hluti af sprenghlægilegu myndbandi sem nú er komið á Netið. Bransasögur heitir rapplagið þar sem Steindi Jr. segir vinum sínum skrautlegar sögur við gerð þáttanna Steindinn okkar.

Nýtt myndband Steinda Jr. endar í blóðbaði

Aðdáendur Steindans okkar bíða í ofvæni eftir að hann frumsýni ný tónlistarmyndbönd á Stöð 2 á föstudögum. Í síðasta þætti kynnti hann til leiks lagið Geðveikt fínn gaur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.