Viðskipti innlent

Landsvirkjun fjárfestir fyrir 1,5 milljarð á Norðausturlandi

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Landsvirkjun áformar að fjárfesta fyrir 1,500 milljónir íslenskra króna í verkefnum á Norðausturlandi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun fyrirtækisins sem samþykkt var á fundi stjórnar Landsvirkjunar í dag.

Í áætluninni er gert ráð fyrir auknum fjármunum í rannsóknir og undirbúning virkjana í landshlutanum, bæði af hálfu Landsvirkjunar og dótturfélags hennar, Þeistareykja ehf. Landsvirkjun hefur þegar varið um 9 milljörðum íslenskra króna í rannsóknir á Norðausturlandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir að áætlað sé að verja rúmlega 720 milljónum króna til áframhaldandi rannsókna og annars undirbúnings á Þeistareykjum. Þar er fyrirhugað að boruð verði ein rannsóknarhola, farið verði í verkefni tengd vegagerð og fjárfest verði í frágangi við borholur. Auknu fé verður einnig varið til ýmissa rannsókna og mælinga. Fram kemur í tilkynningunni að á Þeistareykjum sé nú til reiðu orkugeta upp á um það bil 45 MW.

Þá verður um 580 milljónum króna varið í rannsóknir og undirbúning á Kröflusvæði. Umfangsmestu rannsóknir á svæðinu beinast að því að ná tökum á nýtingu gufu úr holum með hátt sýrustig. Á Kröflusvæði er þegar til reiðu gufa fyrir 50-60 MW virkjun, ef mögulegt reynist að nýta súra gufu.

Tæpar 200 milljónir króna eru áætlaðar í undirbúning Bjarnarflagsvirkjunar á næsta ári. Gert er ráð fyrir álagsprófunum borhola, úrvinnslu úr mælingum, öðrum rannsóknum auk fjárfestinga í mælibúnaði. Þar eru nú til reiðu um 45 MW, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Aukin áhersla verður jafnframt lögð á markaðsstarf af hálfu Landsvirkjunar á árinu 2011 sem meðal annars mun miða að því að ná samningum við viðskiptavini sem hafa áhuga á að byggja upp starfsemi á Norðausturlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×