Viðskipti innlent

Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir al­gjöra yfir­halningu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Gamla Brynjuhúsið, sem reyndar hefur hlotið algjöra yfirhalningu, er nú kirfilega merkt Kormáki og Skildi.
Gamla Brynjuhúsið, sem reyndar hefur hlotið algjöra yfirhalningu, er nú kirfilega merkt Kormáki og Skildi. Vísir/vilhelm

Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar verður innan tíðar opnuð í sögufrægu húsi við Laugaveg 29, sem áður hýsti verslunina Brynju. Húsið hefur verið tekið algjörlega í gegn á síðustu mánuðum.

Glöggir vegfarendur um Laugaveg, helstu verslunargötu miðborgarinnar, tóku eftir því í gær að merkingar Kormáks og Skjaldar höfðu verið settar upp í gluggum Brynjuhússins. Til stendur að flytja verslunina þangað, úr Kjörgarði ofar á Laugaveginum, þar sem hún hefur staðið síðan árið 2006. Vonast er til að nýja verslunin verði opnuð um miðjan nóvember.

Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson opnuðu fyrst herrafataverslun undir eigin nöfnum árið 1996. Tíu árum síðar hófu þeir reksturinn í Kjörgarði og hafa jafnframt fært talsvert út kvíarnar allra síðustu ár. Kormáks og Skjaldar-verslanir er nú einnig að finna við Skólavörðustíg, í Leifsstöð og Gróðurhúsinu í Hveragerði.

Iðnaðarvöruverslunin Brynja var lengi eitt helsta kennileiti Laugavegarins. Búðinni var lokað árið 2022 eftir 103 ára rekstur. Síðan þá hafa nýir eigendur hússins tekið það algjörlega í gegn og nú færist brátt líf í það á ný. 

Kvöldfréttir Stöðvar 2 voru á staðnum í beinni útsendingu 3. nóvember 2022 þegar Brynju var skellt í lás í hinsta sinn.


Tengdar fréttir

Sáu sér leik á borði og tóku yfir Brynju yfir jólin

Ölgerðin er með húsnæði við Laugaveg 29, þar sem byggingavöruverslunin Brynja var áður til húsa, á leigu hjá fyrrverandi eiganda hússins. Nýir eigendur taka ekki við húsinu fyrr en í byrjun árs. Næsta mánuðinn er húsið kallað „Pepsi max húsið“. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×