Hækka viðmið um 20 til 25% 9. nóvember 2010 02:00 Gjafsókn Einstaklingur með tekjur undir tveimur milljónum mun geta fengið gjafsókn eftir að Ögmundur Jónasson hækkar tekjuviðmiðið.Fréttablaðið/GVA
Tekjuviðmið vegna gjafsóknar verða hækkuð um 20 til 25 prósent í kjölfar fjölmargra ábendinga um að viðmiðið sé of lágt, sagði Ögmundur Jónasson, dómsmála- og mannréttindaráðherra, á Alþingi í gær. Með því að sækja um að fá gjafsókn fyrir dómstólum geta tekjulágir höfðað mál þótt þeir hafi ekki efni á því að bera kostnað við málsóknina. Gjafsóknarnefnd þarf að samþykkja umsóknina, en geri hún það fellur kostnaður við málsóknina á ríkið. Eitt af því sem gjafsóknarnefnd þarf að horfa til eru tekjur þeirra sem sækja um. Árstekjur þeirra sem sækja um þurfa að vera undir 1,6 milljónum, eða 2,5 milljónum í tilviki hjóna eða sambúðarfólks. Tekjuviðmiðin munu hækka um 25 prósent, í tvær milljónir króna, fyrir einstaklinga, og um 20 prósent, í þrjár milljónir króna, fyrir sambúðarfólk. Ögmundur sagði kostnað vegna gjafsókna falla á ríkið einu til tveimur árum eftir að gjafsókn er veitt. Rýmkun á heimild muni því ekki auka útgjöld ríkisins strax. Málið er nú í skoðun í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu. - bj
Fréttir Mest lesið Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Innlent Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Innlent Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Innlent Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Innlent Lögregla stöðvaði 195 í Ofurskálareftirliti Innlent Sprungin dekk og ónýtar felgur Innlent Foreldrar Bryndísar Klöru í Kompás Innlent Aðkoman vægast sagt ekki fögur Innlent Fékk að borða hjá hjónunum þegar hann var svangur Innlent Nasistadýrkun og gyðingaandúð: Ye hættur á Twitter Erlent Fleiri fréttir Framkvæmdir á Bessastöðum kostuðu 120 milljónir Ráðuneytið biður umboðsmann Alþingis afsökunar Hálfs árs dómur yfir skólastjóra fyrir umboðssvik Foreldrar Bryndísar Klöru í Kompás Fékk að borða hjá hjónunum þegar hann var svangur Ungir nágrannar heyrðu óvenjuleg hljóð frá heimili hjónanna Miðflokkurinn gagnrýnir að Daði Már flytji tölu Tryggja varnir Sjúkratrygginga eftir stórfelld fjársvik verkefnastjóra Sprungin dekk og ónýtar felgur Óvíst hversu langan tíma myndun meirihluta tekur Kennarar klæðast svörtu í dag Hinn grunaði hafi verið svakalega duglegur og greindur Kennarar íhuga næstu skref og óvissa um borgarstjórnarmeirihluta Hefnd Ingu kom í bakið á Einari Sagðist á leið í Hallgrímskirkju fyrir guð eða djöfulinn Aðkoman vægast sagt ekki fögur Svona verða umræður um stefnuræðu Kristrúnar í kvöld Grunaður morðingi staldraði stutt við í dómsal Lögregla stöðvaði 195 í Ofurskálareftirliti Margar slæmar holur á Hellisheiði Heggur ísskúlptúra í bílskúrnum Kýldu dreng í Mjóddinni og reyndu að stela úlpu Býður sig fram til formanns Siðmenntar Rækta 60 tonn af íslenskum jarðarberjum Útilokar ekki frekari aðgerðir Allir þurfi að vera í verkfalli á sama tíma Höfnuðu sjúkraflugi vegna trjánna Kennaraverkföllin dæmd ólögmæt Krefja borgina um tafarlaus viðbrögð Leynd yfir meirihlutaþreifingum í Reykjavík og upphitun fyrir ofurskálina Sjá meira