Lífið

Beyoncé aftur sögð ólétt

Ólétt? Beyoncé er aftur sögð ólétt í bandarískum fjölmiðlum. Endanleg staðfesting hefur þó ekki borist.
Ólétt? Beyoncé er aftur sögð ólétt í bandarískum fjölmiðlum. Endanleg staðfesting hefur þó ekki borist.

Það virðist vera árviss viðburður hjá bandarískum fjölmiðlum að greina frá óléttu bandarísku söngkonunnar Beyoncé Knowles. Og nú var það US Weekly sem segist hafa traustar heimildir fyrir því að Beyoncé og eiginmaður hennar Jay-Z eigi von á sínu fyrsta barni.

Tímaritið hefur eftir innanbúðarmanni í starfsliði söngkonunnar að fréttirnar hafi komið henni á óvart, þetta hafi ekki verið á dagskránni því hún sé með hljóðversplötu í smíðum og hafi ætlað í tónleikaferðalag til að fylgja henni eftir. „Þetta kom henni í opna skjöldu, Knowles elskar börn en hún var ekki við því búin að verða mamma," hefur tímaritið eftir heimildarmanni sínum. Annar heimildarmaður hefur hins vegar aðra sögu að segja og upplýsir dygga lesendur blaðsins um að Beyoncé líti á þetta sem gjöf frá Guði.

„Hún er ótrúlega hamingjusöm."

US Weekly hafði af þessu tilefni samband við nokkra nákomna vini og ættingja hjónanna. Kevin Liles, framkvæmdastjóri plötufyrirtækis og vinur Jay-Z til margra ára, segir rapparann vera mikinn fjölskyldumann og Solange, systir Beyoncé, segir að söngkonan hafi ótrúlega fallegt hjartalag. „Hún verður frábær mamma." Tímaritið greinir jafnframt frá því að þetta hafi verið draumur Jay-Z mjög lengi og hann hafi þrýst á eiginkonuna sem hafi viljað frestað þessu eins lengi og mögulegt væri vegna ferils hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.