Viðskipti erlent

Sögufrægt hótel í New York til sölu

Hið sögufræga Chelsea hótel í New York er til sölu. Á þessu hóteli samdi Dylan Thomas ljóð sín, söngkonan Janice Joplin bjó þar löngum og Sid Vicious bassaleikari Sex Pistols framdi sjálfsmorð þar.

Fjölskyldurnar þrjár sem rekið hafa hótelið undanfarin 65 ár hafa nú ákveðið að selja það en talsmaður þeirra segir Chelsea verði alltaf Chelsea sama hver kaupi það.

Af öðrum þekktum listamönnum sem tengjast Chelsea hótelinu má nefna að Bob Dylan samdi plötuna Blonde on Blonde á hótelinu, og fólk á borð við Jimi Hendrix, Leonard Cohen, Andy Warhol og Joni Mitchell voru í hópi fastagesta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×