Golf

Tiger er ekkert sérstakur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Prodger gefur hér Choi góð ráð.
Prodger gefur hér Choi góð ráð.

Tiger Woods mun væntanlega ekki heilsa kylfusveini KJ Choi, Andy Prodger, sérstaklega hlýlega í dag eftir að kylfusveinninn talaði ekkert of fallega um Tiger.

„Tiger Woods er fyrir mér ekkert sérstakur. Hann er bara Tiger Woods. Ég hef séð marga betri spilara en Tiger á mínum ferli. Ef fólk vill hugsa um frábæran kylfing á fólk að hugsa um Lee Trevino eða Jack Nicklaus. Tom Watson er líka stórkostlegur. Tiger meira en góður en ég hef séð þá stórkostlegu," sagði Prodger.

Þessi ummæli ættu að gefa hring dagsins smá krydd enda er Choi að spila með Tiger.

Prodger er gamalreyndur kylfusveinn og hélt á poka Nick Faldo árið 1989 er hann vann sinn fyrsta græna jakka.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×