Formúla 1

Sjö Formúlu 1 mót af átta frábær

Ýmsar aðstður hafa mætt ökumönnum í mótum ársins og Jenson Button hefur unnið tvö mót á McLaren.
Ýmsar aðstður hafa mætt ökumönnum í mótum ársins og Jenson Button hefur unnið tvö mót á McLaren. Mynd: Getty Images

Martin Whitmarsh hjá McLaren telur að Formúlu 1 sé þessa dagana í góðum málum og að sjö mót af átta af verið skemmtilegt. Aðeins fyrsta mót ársins þótti leiðigjarnt að hans mati.

McLaren er nú í forystu í stigakeppni ökumanna og bílasmiða, en Lewis Hamilton er efstur í stigakeppni ökumanna með 106 stig, Jenson Button 103 og Fernando Alonso 100.

"Það er fullt af fólki sem vill skrifa neikvæða hluti, en við erum búnir að fá sjö frábær mót", sagði Whitmarsh í frétt á autosport.com.

"Í Tyrklandi munaði þremur sekúndum á fjórum fyrstu bílunum eftir 40 hringi og það var mikið álag á mönnum. Svo var keppt í Kanada", sagði Whitmarsh og starfsmönnum autosport.com taldist til að 60 framúrakstrar hefðu litið dagsins ljós í Montreal.

Flestir vilja meina að það hafi verið vegna þess að talverður munur var á mjúkum og hörðum dekkjum sem ökumenn þurfa að nota í hverju móti og það hafi skapað óvenjulega skemmtilegar aðstæður hvað taktík varðar.

"Kanada var frábær keppni og við höfum verið lánsamir og það hafa verið klassísk kappakstursmót á árinu", sagði Whitmarsh.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×