Viðskipti erlent

Eigendur Eik Banki töpuðu 120 milljörðum

Eigendur Eik Banki, það er hluthafar bankans, hafa tapað 6 milljörðum danskra kr. eða um 120 miljörðum kr. frá árinu 2007 og þar til í gærkvöldi þegar bankaumsýsla Danmerkur, Finansiel Stabilitet, yfirtók bankann á 0 kr.

Samkvæmt frétt um málið á business.dk er búið að stöðva öll viðskipti með hluti í Eik Banki í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og það sama gildir um viðskipti með hlutina í kauphöllinni hér heima.

Hlutir í Eik Banki hafa hrapað í viðskiptum í vikunni. Á föstudag fyrir viku síðan stóðu þeir í 64 dönskum kr. á hlut en í gær var verðið komið niður í 18,9 danskrar kr. sem er rýrnun upp á 70%.

Þótt Finansiel Stabilitet hafi yfirtekið allan rekstur Eik Banki, bæði í Færeyjum og í Danmörku, á 0 kr. er þar með ekki sagt að bankinn verði verðlaus í framtíðinni þegar bankaumsýslan hugsanlega selur hann aftur. Í frétt business.dk segir hinsvegar að öll líkindi séu á að áður en að slíkri sölu komi verði bankinn fyrir löngu orðinn gjaldþrota.

Fram kemur að í lok júlí árið 2007 stóðu hlutir í Eik Banki í 744 dönskum kr. og þá var markaðsverðmæti bankans 6 milljarðar danskra kr. Þetta fé hefur nú gufað upp.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×