Viðskipti erlent

Leiðtogar ESB samþykkja harðari evru-reglur

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa komið sér saman um að setja harðar reglur sem miða að því að styrkja evrusvæðið og minnka líkurnar á frekari fjármálakreppum.

Leiðtogarnir sitja nú á fundi og í gær komu þeir sér saman um að setja upp neyðarsjóð sem ætlað er að styðja við evruna á erfiðum tímum. Þá hyggjast þeir setja lög sem gera Evrópusambandinu kleift að fylgjast náið með efnahagi aðildarlandanna og grípa inn í ef í óefni stefnir.

Að sögn embættismanna sambandsins lá við algjöru hruni á evrusvæðinu fyrr á þessu ári vegna þess að reglur af þessu tagi hafi vantað. Á sama fundi tókst David Cameron leiðtoga íhaldsflokksins að koma í veg fyrir tæplega sex prósenta hækkun á framlögum þjóðanna til sambandsins og naut hann stuðnings Frakka og Þjóðverja í þeirri baráttu.

Niðurstaðan var sú að hækkunin mun nema 2.9 prósentum.

Fréttaritari BBC á fundinum sem haldinn er í Brussel, segir að með nýju reglunum verði hægt að þvinga lönd sem aðild eigi að evrunni til þess að taka til í eigin ranni löngu áður en vandræði viðkomandi lands verði að vandamáli alls svæðisins. Hermann Van Rompoy, forseti Evrópuráðsins fagnaði tillögunum og segir að mikilvæg skref hafi verið tekin til þess að styrkja evruna og aðildarlönd hennar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×