Stórskotalið reynir við Þór 20. október 2010 08:00 Hokinn af reynslu Óskar Jónasson segir Ladda vera hokinn af reynslu en hér reynir leikarinn sig við rödd Mjölnis. Fréttablaðið/Valli „
Þetta er heill her af karlmönnum og hver öðrum betri,“ segir Óskar Jónasson leikstjóri, en raddprufur fyrir íslensku útgáfuna af teiknimyndinni Þór standa nú yfir í upptökuverinu Upptekið. Meðal hlutverka sem verið er að prófa í eru Þór og Mjölnir, hamarinn víðfrægi. Þegar Fréttablaðið bar að garði var Þórhallur Sigurðsson, Laddi, að prófa að tala fyrir Mjölni en Laddi er eflaust einhver besta teiknimyndarödd Íslandssögunnar. „Hann er hokinn af reynslu, hefur einhvern tón sem er bæði sannur og réttur, eins og öll þjóðin þekkir,“ segir Óskar um Ladda án þess þó að vilja láta neitt uppi um möguleika Ladda. Meðal annarra sem hafa reynt sig við hlutverkin tvö eru Sveppi, Atli Rafn og Felix Bergsson sem er einnig nokkuð reyndur í teiknimyndunum, hefur talað fyrir bæði kúrekann Vidda í Leikfangasögu og Manna í Ísaldarmyndunum. Óskar segir vinnu við teiknimynd allt öðruvísi en það sem hann hefur kynnst. „Við erum búnir að vera lengi neðanjarðar því svona teiknimynd verður til á jarðfræðilegum tíma og það er svolítið nýtt fyrir mér enda vanur sjónvarpi þar sem allt gerist hratt,“ útskýrir Óskar sem fagnar því að komast upp á yfirborðið og hitta annað fólk. Óskar reiknar með að raddirnar verði ráðnar á næstu vikum, þeir muni hins vegar ekki ráða í hlutverkin fyrr en þeir eru orðnir fyllilega sáttir. - fgg
Lífið Menning Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Maggie Smith er látin Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Sjá meira