Lífið

Tom Cruise rænir leikara af Jóni Atla

Leikur með Cruise Tom Cruise fékk Michael Nyqvist til að leika í Mission: Imposs­-ible 4 og því þurfti að fresta uppsetningu á Djúpinu eftir Jón Atla í Svíþjóð.
Leikur með Cruise Tom Cruise fékk Michael Nyqvist til að leika í Mission: Imposs­-ible 4 og því þurfti að fresta uppsetningu á Djúpinu eftir Jón Atla í Svíþjóð.

„Þetta er bara svona, maður verður að taka þessu," segir Jón Atli Jónasson, leikskáld og leikstjóri. Jón Atli er að leggja lokahönd á leiksýninguna Mojito sem hann leikstýrir og skrifar sjálfur og verður frumsýnd í Tjarnarbíói á næstunni.

Jón Atli var líka langleiðina kominn með að setja upp einleikinn Djúpið í Svíþjóð með sænsku stórstjörnunni Michael Nyqvist. Nyqist er hvað þekktastur fyrir leik sinn í spennumyndunum um Mikael Blomkvist og Lisbeth Salander eftir Millennium-þríleik Stiegs Larsson.

„En svo hringdi hann bara í mig frá Hollywood og sagði að við þyrftum að fresta þessu í hálft ár, hann væri að fara að leika í Mission: Impossible 4," segir Jón Atli en eins og flestum ætti að vera kunnugt um eru þær myndir hugarfóstur Tom Cruise, hinnar smávöxnu stórstjörnu.

Leiðir Jóns og Nyqvists lágu saman fyrir um ári.

„Ég setti upp Djúpið í Skotlandi og langaði til að prófa að fara með það aðeins víðar. Ég sendi honum því bara handritið og hann varð svona hrifinn að hann bauð mér heim til sín í mat í Svíþjóð þar sem ég hitti hann og fjölskylduna hans. Og síðan þá höfum við verið að vinna að því að láta þetta gerast."

Örlögin gripu hins vegar í taumana og Nyqvist er nú á leið til Hollywood eins og annar samstarfsfélagi Jóns Atla, Baltasar Kormákur.

„Þeir tveir eiga þetta báðir skilið, þetta eru miklir hæfileikamenn."

- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.