Fótbolti

Inter fær ekki að halda Eto´o

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos / AFP

Inter fær ekki að nota Kamerúnann Samuel Eto´o í leiknum gegn Chievo á miðvikudag þar sem knattspyrnusamband Kamerún vill fá leikmanninn um leið og það hefur rétt á honum.

Það er á mánudag en Inter ól þá von á brjósti að halda honum fram á fimmtudag þar sem Kamerún byrjar ekki að spila í Afríkukeppninni fyrr en 13. janúar.

Eto´o spilaði æfingaleik með Inter í dag og tekur því ekki þátt í fögnuði Barcelona sem honum og Eiði Smára var meðal annars boðið í.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×