Að trúa á Guð en grýlur ei Sigfinnur Þorleifsson skrifar 5. júní 2010 05:30 já gott fólk þetta heitir líka skilnaður hjá okkur kynvillingunum þið verðið bara að kyngja því (Ingunn Snædal, Komin til að vera, nóttin, Bjartur 2009). Hárbeitt kaldhæðni skáldsins hittir mig í hjartastað, gagnkynhneigðan prestinn. Í aldanna rás hefur kirkjan orðið að kyngja ýmsu, þegar hún sem stofnun viðurkenndi með trega eftir á það sem í dag telst sjálfsagt og eðlilegt. Þar má nefna hlutskipti kvenna sem hallaði mjög á en lengi vel stóðu konur engan veginn jafnfætis körlum hvað varðar mannréttindi og gera ekki fyllilega enn. Þessa mismunun studdi kirkjan ljóst og leynt eins og sjá má til að mynda í orðum og gerðum helgisiðanna. Séu þeir siðir skoðaðir þá er ljóst að um aldir var áherslan á undirgefni konunnar, og textar ritningarinnar valdir með það í huga að konan gerði sér ljósar skyldur sínar og stöðu líkt og ríkjandi viðhorf bauð. Þannig stendur til að mynda í hjónavígsluritúalinu í handbók presta frá 1852 með tilvísun í postulann Pál: „Kvinnurnar veri bændum sínum undirgefnar… eins og söfnuðurinn er Kristi undirgefinn, svo skulu og einnig kvinnurnar bændum sínum í öllu." Þannig voru viðteknar hugmyndir og hagsmunir feðrasamfélagsins teknar fram yfir orð Krists um frelsi manneskjunnar og jafnstöðu frammi fyrir Guði og náunganum. Ég trúi á Guð en grýlur ei, sagði þjóðskáldið forðum. Það er hægt að nota texta ritningarinnar til að ógna og hræða, allt veltur það á lesskilningi okkar og túlkunum. Ættum við ekki fremur að lesa fagnaðarerindið, eins og við nefnum boðskapinn um Krist, með Krist fyrir sjónum? Til blessunar og vaxtar öðrum mönnum? Það var ekki að ófyrirsynju að Kristur dró saman öll boð og bönn og setti þau fram í kröfunni um að elska Guð og aðrar manneskjur og virða náungann á sama hátt og við kjósum að við séum virt. Þessi nálgun nægir mér, með henni verður mér m.a. ljóst (ég harma það að vísu að hafa ekki áttað mig á því miklu fyrr) að kynhneigð á ekki að greina okkur hvert frá öðru. Við erum öll manneskjur sköpuð í Guðs mynd og því óendanlega dýrmæt í augum hans. Og samt stendur enn þá fast í koki sumra þjóna kirkjunnar að samkynhneigðir vilji eiga hlut í hjónabandinu eins og aðrir jafnréttháir og fullgildir einstaklingar. Við beitum margvíslegum og misvitrum rökum, vitnum í lagabálka úr hinu gamla lögmáli, sem Kristur sjálfur hafnaði og við höfnum alla jafnan sjálf, vísum til hefðarinnar eins og hún sé óumbreytanleg skikkan Skaparans, og klæðum fordóma okkar í fleiri áþekka búninga. Segjumst þó elska alla tilætlunarlaust en viljum samt í nafni kærleikans að þau séu nákvæmlega eins og við í háttum sínum og hegðan. Áður var vitnað til fortíðar í handbókartexta um hjónabandið frá árinu 1852. Í helgisiðabók íslensku þjóðkirkjunnar frá árinu 1910 kveður strax við annan og betri tón og nú er komið árið 2010 og þörfin brýn fyrir nýjan söng. Nú þegar fyrir liggur frumvarp á Alþingi um ein hjúskaparlög ætti kirkjan að taka því fagnandi. Í stað þess að heilsa samkynhneigðum með litla fingri vinstri handar fyrir aftan bak ættum við þjónar kirkjunnar að sjá sóma okkar í því að blessa hjónabönd þeirra með báðum höndum og mikilli gleði. Nema við viljum sitja ein að hjónaskilnuðum? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun Mest lesið Flugan í ídýfunni Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir Skoðun Sannleikurinn í tengdamömmumálinu Ólöf Björnsdóttir Skoðun Látið okkur í friði Vilhjálmur Árnason Skoðun „...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“ Hanna Björg Vilhjálmsdóttir Skoðun Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík? Sigrún Ásta Einarsdóttir Skoðun Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Skoðun Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti? Carmen Maja Valencia Skoðun Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það? Ingibjörg Isaksen Skoðun Hann breytti öllu – og gerði það með háði Jónas Sen Skoðun Og hvað svo? Eyrún Birna Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík? Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar Skoðun Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði Grímur Atlason skrifar Skoðun „...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“ Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Látið okkur í friði Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Gefðu fimmu! Ágúst Arnar Þráinsson skrifar Skoðun Allar hendur á dekk! Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Engin sátt án sannmælis Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Að finna rétt veiðigjald... Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga! Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Og hvað svo? Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar Skoðun Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Sannleikurinn í tengdamömmumálinu Ólöf Björnsdóttir skrifar Skoðun Hann breytti öllu – og gerði það með háði Jónas Sen skrifar Skoðun Ekki fylla höfnina af grjóti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Lengri útivistartími barna Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Flugan í ídýfunni Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar Skoðun Að mennta til lífs, ekki prófa Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími til... Birgir Rúnar Davíðsson skrifar Skoðun Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland? Sigurbjörn Svavarsson skrifar Skoðun Er píptest rót alls ills? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Vertu bandamaður kæri bróðir! Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá frammistöðuvæðingu til farsældar Helga Þórey Júlíudóttir skrifar Skoðun Ísland á að verja með íslenskum lögum Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði Logi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði Grímur Atlason skrifar
Skoðun Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar
Skoðun Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það? Ingibjörg Isaksen skrifar