Lífið

Uppnefnd af netsvindlara

Mischa Barton varð miður sín eftir ummælin, sem fyrrverandi segir ekki sín.
NordicPhotos/getty
Mischa Barton varð miður sín eftir ummælin, sem fyrrverandi segir ekki sín. NordicPhotos/getty

Fyrrverandi kærasti leikkonunnar Mischu Barton, olíuerfinginn Brandon Davis, er sagður hafa uppnefnt hana á alheimsvefnum og meðal annars gert grín að holdafari hennar. Davis heldur því þó fram að skilaboðin komi ekki frá honum, heldur hafi einhver óprúttinn aðili stofnað Twitter-síðu í hans nafni.

„Ég mundi aldrei segja neitt ljótt um Mischu, sérstaklega ekki um þyngd hennar. Ég er miður mín yfir því að einhver sé að segja slíka hluti í mínu nafni," sagði Davis í viðtali við In Touch.

Vinur Davis tekur í sama streng og segir olíuerfingjann ekki geta verið á bak við þetta þar sem hann noti Netið lítið sem ekkert dags daglega.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×