Viðskipti erlent

Danska fjármálaeftirlitið kærir FIH til lögreglunnar

Fjármálaeftirlitið í Danmörku hefur kært FIH Realkredit, sem er hluti FIH bankans, til lögreglunnar þar í landi. Ástæðan fyrir kærunni er að FIH Realkredit hefur ekki skilað neinum ársreikningum, eða árshlutareikningum, síðan árið 2007.

Eins og kunnugt er af fréttum var FIH bankinn í eigu Kaupþings frá árinu 2005 og fram að hruninu haustið 2008 þegar bankinn komst í eigu skilanefndar Kaupþings. Jafnframt var Seðlabanki Íslands með allsherjarveð í bankanum vegna 500 milljón evra láns sem veitt var Kaupþing korteri fyrir hrunið haustið 2008. FIH bankinn hefur nú verið seldur og allar líkur eru á að Seðlabankinn fái lánið greitt að fullu og gott betur.

Í frétt um kæru fjármálaeftirlitsins á business.dk segir að FIH Realkredit, sem skráð dótturfélag FIH bankans, sé skylt að skila inn ársreikningum og hálfsársuppgjörum sínum þar sem skuldabréf þess eru skráð í dönsku kauphöllinni.

Fjármálaeftirlitið ákvað því að kæra FIH Realkredit til lögreglunnar eftir að hafa ráðfært sig við Sjóðaráð Danmerkur, Fondsrådet.

Fram kemur í fréttinni að lögreglan muni ekki þurfa að rannsaka málið náið því FIH bankinn hefur þegar viðurkennt sök sína í því. Hefur bankinn birt ársreikningana opinberlega og sent þá til fjármálaeftirlitsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×