Viðskipti erlent

Stjórnvöld vöruð við Lehman Brothers löngu fyrir fallið

Bandarísk stjórnvöld, það er fjármálaeftirlit landsins (SEC) og seðlabanki New York ríkis voru vöruð við að eitthvað óhreint væri í pokahorninu hjá Lehman Brothers í mars árið 2008. Skilaboðin komu því sex mánuðum áður en Lehman Brothers varð gjaldþrota.

Í umfjöllun Financial Times um málið segir að hvorki SEC né seðlabankinn hafi brugðist við þessari viðvörun á einn eða neinn hátt. Viðvörunin kom frá Merill Lynch, samkeppnisaðila Lehman Brothers, sem taldi bókhaldsaðferðir Lehman Brothers við að gera upp lausafjárstöðu sína vera brot á samkeppnislögunum.

„Við byrjuðum að fá hringingar frá fjárfestum okkar vegna skuldastöðunnar. Þar sem við trúðum ekki tölunum frá Lehman og töldum útreikninga þeirra gallaða höfuðum við samband við stjórnvöld," segir einn af fyrrum starfsmönnum Merill Lynch í samtali við Financial Times.

Bókhaldsbrellur Lehman Brothers gerðu það að verkum að bankinn virtist vera með bestu lausafjárstöðuna af öllum bönkum í Bandaríkjunum á þessum tíma. Á tímabili íhugaði Merill Lynch að taka upp þessar bókhaldsbrellur til að fegra sína eigin stöðu.

SEC hefur ekki viljað tjá sig um málið við Financial Times og seðlabankinn hefur ekki getað staðfest hvort samtöl áttu sér stað milli hans og Merill Lynch um þetta mál.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×