Innlent

Kannabisræktandi í haldi fyrir skattsvik

Kannabisverksmiðja Í verksmiðjunni sem fjórmenningarnir voru dæmdir fyrir að setja upp hefði verið hægt að rækta 600 plöntur í senn. Myndin er úr annarri samsvarandi verksmiðju.
Kannabisverksmiðja Í verksmiðjunni sem fjórmenningarnir voru dæmdir fyrir að setja upp hefði verið hægt að rækta 600 plöntur í senn. Myndin er úr annarri samsvarandi verksmiðju.
Karlmaður á fertugsaldri, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald á mánudag vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklu fjársvikamáli, hlaut fyrr á þessu ári sex mánaða fangelsisdóm fyrir hlutdeild sína í kannabisræktun. Maðurinn er talinn tengjast meintum höfuðpaur í málinu, sem situr í gæsluvarðhaldi í Venesúela. Þá er hann einnig talinn tengjast starfsmanni Ríkisskattstjóra sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna málsins, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Í gær og á mánudag var fimm manns, tveimur konum og þremur karlmönnum, sleppt úr gæsluvarðhaldi. Í síðustu viku hafði einum manni einnig verið sleppt. Hópurinn var handtekinn í síðasta mánuði. Við húsleit fann lögreglan um ellefu kíló af hassi og fimm hundruð þúsund krónur í peningum heima hjá tveim þeirra, manni og konu, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Sexmenningunum er sleppt nú þar sem þáttur þeirra í málinu er talinn liggja ljós fyrir. Fólkið hefur allt stöðu grunaðra í fjársvikunum.

Sterkir þræðir eru taldir liggja til mannsins sem sætir gæsluvarðhaldi í Venesúela og bíður þess að verða framseldur hingað til lands. Hann er talinn hafa tekið við þeim 270 milljónum króna sem sviknar voru út í formi virðisaukaskatts. Jafnframt berast böndin að honum hvað varðar eignarhald á fíkniefnum og fjármunum sem fundust við húsleitina. Hann var því eftirlýstur hjá Interpol, sem leiddi til þess að hann var handtekinn þar sem hann var á leið til Frankfurt.

Maðurinn sem situr enn inni vegna rannsóknar lögreglu var, ásamt þremur mönnum öðrum, dæmdur í Héraðsdómi Austurlands fyrir ræktun á sextán kannabisplöntum á bænum Karlsstöðum á Berufjarðarströnd. Jafnframt voru mennirnir dæmdir fyrir að hafa sett upp mjög stóra ræktunaraðstöðu fyrir allt að 600 kannabisplöntur. Lögreglan stöðvaði athæfið í maí á síðasta ári.

Maðurinn sem skal sæta gæsluvarðhaldi fram á föstudag hafði umráð yfir bænum þar sem kannabisverksmiðjan hafði verið sett niður. Taldi dómurinn sannað að hann hefði fjármagnað kannabisverksmiðjuna á Austfjörðum á sínum tíma og haft veg og vanda af skipulagningu hennar.

jss@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×