Viðskipti erlent

HSBC hagnaðist um 2100 milljarða króna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Rekstur HSBC bankans gekk ágætlega á fyrri helmingi ársins. Mynd/ afp.
Rekstur HSBC bankans gekk ágætlega á fyrri helmingi ársins. Mynd/ afp.
Hagnaður HSBC, stærsta banka í Evrópu, nam 11.1 milljarði sterlingspunda á fyrri helmingi ársins. Hagnaðurinn nemur um 2100 milljörðum íslenskra króna.

Hlutabréf í bankanum hækkuðu um 3% í viðskiptum í morgun , eftir að þessi rekstrarniðurstaða var kynnt. Breska blaðið Daily Telegraph segir á vef sínum að flestir sérfræðingar hafi gert ráð fyrir að hagnaður fyrir skatta yrði um 9 milljarðar evra fyrir skatta.

Sérfræðingar HSBC bankans búast við því að hagvöxtur verði hægur í mörgum Evrópuríkjum en horfa bjartari augum til annarra ríkja, á borð við Kína, þar sem markaðir hafa verið vaxandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×